top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Vilja einfalda lífið

  • 3 days ago
  • 4 min read
Vinkonurnar í Skynró. Ljósmynd aðsend.
Vinkonurnar í Skynró. Ljósmynd aðsend.

Athygli er vakin á að vefritið ÚR VÖR er í samstarfi við Heimildina, þar sem Heimildin birtir efni frá ÚR VÖR reglulega.


Þrjár vinkonur norðan heiða eru vel á veg komnar með hugmynd um að hanna flíkur sem gagnast börnum og fólki með skynúrvinnsluvanda. Þær hafa stofnað fyrirtækið Skynró og fengu nýlega styrk sem hjálpar þeim að hefjast handa hvað hönnunina varðar. Hugmynd þeirra hefur vakið mikla athygli í samfélaginu norðan heiða og segjast þær stöllur vilja einfalda lífið fyrir fólk því það sé nú þegar nógu flókið.


Húsvísku vinkonurnar Sólveig Ósk Guðmundsdóttir, leikskólakennari, Júlía Margrét Birgisdóttir, stuðningsfulltrúi og Sonja Finnsdóttir, iðjuþjálfi eru þær sem mynda teymið í kringum Skynró. Sólveig og Júlía eru báðar með ADHD og eiga einnig börn með ADHD og einhverfu og hafa því verið að eiga við skynúrvinnsluvanda nánast allt sitt líf.

Skilgreining á skynúrvinnsluvanda (e. Sensory Processing Disorder) er þegar skyntruflanir eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf fólks. Skynúrvinnsluvandi getur staðið einn og sér eða verið fylgifiskur annarra raskana, svo sem ADHD, einhverfu og kvíða, svo dæmi séu tekin. 

„Ég er iðjuþjálfi og er sú sem bættist síðust við teymið. Júlía og Solla stofnuðu þetta, þær eru orðnar sjóaðar í því að finna lausnir við þeim truflunum sem tengjast þessu. Þær tóku í vor þátt í Krubb, sem er hugmyndahraðhlaup á Húsavík og unnu þar fyrstu verðlaun fyrir hugmynd sína um að búa til hversdagsfatnað fyrir börn með skynúrlausnarvanda. Það má segja að þar hafi hugmyndin farið á flug. Þær bæta mér svo við teymið, en hluti af mínu starfi er að meta skynúrvinnslu hjá börnum og veita foreldrum og starfsfólki ráðgjöf.“ segir Sonja.


Að sögn Sonju tóku þær svo nýlega þátt í Startup Stormi á vegum Norðanáttar og voru þar eitt af sjö teymum í þeim viðskiptahraðli. „Við fengum hellings aðstoð frá Norðanátt, SSNE og SSNV, bæði hvað varðar ráðgjöf til að móta hugmynd okkar betur og til að setja stefnuna á hvert við viljum fara með hugmyndina. Við erum uppfullar af hugmyndum en þurfum að draga saman hvað við þurfum að byrja á og hver framtíðarsýnin okkar er. Við eignuðumst stórt og mikið tengslanet og mikinn lærdóm í fyrirtækjarekstri almennt.“ segir Sonja.


Auk þáttöku þeirra í viðskiptahraðlinum þá fengu þær einnig styrk á dögunum frá Uppbyggingarsjóði sem hjálpar þeim að koma af stað samstarfi við fatahönnuð sem þær segja vera mikla hjálp í.

„Við höfum sjálfar verið að sauma peysur og prófa, við erum með miklar skoðanir um hvernig þetta á að vera, en við þurfum liðsmenn sem koma hugmyndinni betur í framkvæmd. Það er betra að hafa fleiri með sér sem vita nákvæmlega hvað við eigum að gera.“ segir Sólveig.

Þær segjast ekki hafa fundið aðra aðila sem séu að gera svipaða hluti hérlendis, en hafa séð nokkra aðila erlendis sem hafa svipaðar hugleiðingar. „Um leið og maður byrjar að vinna í svona verkefni þá breytist algorithminn algjörlega. Við höfum séð lítil fyrirtæki á TikTok sem eru að gera eitthvað í þessa áttina, en þetta eru yfirleitt einstaklingar sem eru ekki stórtækir í þessu, heldur eru með heimasaumaða vöru, þannig að það er ekki hægt að panta það til Íslands.“ segir Sólveig.


Að sögn Júlíu er næsta skref að athuga með aukahluti sem fylgja þeirri peysu sem þær viljum hanna og fara í þróunarvinnu með þannig flík með börnum í skólanum bæði á Húsavík, sem og annarsstaðar, til að finna út hvað virki best. „Við fengum aðstöðu í Hraðinu hérna á Húsavik þar sem við fáum aðgang að skrifstofu sem og FabLab. Við erum að læra á tækin og forritin í Fablab til að búa til aukahluti og svo er næsta skref að komast í samband við fatahönnuð sem gæti verið okkur innanhandar. Við höfum átt samskipti við ákveðinn aðila, en það er ekki niðurneglt.

Skynúrvinnsluvandi er þannig að börn þurfa annaðhvort að einangra sig frá áreiti eða auka áreiti til að geta haldið einbeitingu og til að geta tekið virkan þátt í skóla og athöfnum daglegs lífs. Hugmyndin er að búa til tvær peysur til að byrja með, eina fyrir þá sem þurfa aukna örvun og svo þá sem þurfa aukna einangrun. Það hefur skapast mikið umtal um þetta í samfélaginu og virðist vera mikill áhuga á svona vörum.

Þannig að við viljum byrja þar og sjá hvert það leiðir okkur. Svo erum við að búa til heimasíðu og við viljum hafa allskyns fróðleik þar inni, allt það sem við höfum lært í lífi okkar og námi. Fólk getur þá nýtt sér okkar þekkingu á þessum málum, í staðinn fyrir að vera að finna upp hjólið sjálft.“ segir Júlía.


Sólveig segir að það að eiga við svona vanda sé ekki auðvelt, þrátt fyrir að hafa gert það stóran hluta ævinnar. „Það sem virkar í dag, virkar kannski ekki á morgun varðandi svona skynúrvinnsluvanda. Maður er endalaust að reyna og prófa sig áfram og manni líður oft eins og maður sé einn. Við viljum gera vörur og fræðslu aðgengilegt fyrir börn og fullorða og við viljum skapa ákveðið stuðningsnet, til að einfalda lífið, því það er oft alveg nógu flókið fyrir.“ segir Sólveig að lokum.

 
 
 

Comments


bottom of page