top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Langþráður draumur

22 hours ago
3 min read

Vífill og Alejandra í Syðra Holti. Ljósmynd aðsend.


Athygli er vakin á að vefritið ÚR VÖR er í samstarfi við Heimildina, þar sem Heimildin birtir efni frá ÚR VÖR reglulega.


Parið Vífill Eiríksson og Alejandra Soto Hernández voru orðin þreytt á borgarlífinu í Reykjavík og höfðu augastað á búskap á landsbyggðinni. Eftir stutta íhugun festu þau kaup á bænum Syðra-Holti í Svarfaðardal árið 2021 og fluttu þangað ásamt foreldrum Vífils, þeim Eiríki Gunnarssyni og Inger Steinsson og systur hans, Ilmi Eiríksdóttur. Þar rækta þau grænmeti á lífrænan máta undir nafninu „Yrkja Svarfaðardal” og stefna á sauðamjólkurframleiðslu á næstu misserum. 


Vífill segir að fjölskyldan sjái ekki eftir þessari ákvörðun, en faðir hans er lærður bóndi og hafði lengi dreymt um að láta þann draum rætast að sinna búskap. “Pabbi gerðist bóndi árið 1989, lauk námi þá, en varð samt aldrei bóndi. Þannig að þetta var draumur hans sem hann hafði svolítið gleymt en varð að veruleika með þessu.

Við leituðum að stað um allt land og fundum stað fyrir norðan. Við erum þrjár fjölskyldur sem koma að þessum búskap erum bara að búa til lítið samfélag hérna. Við kærastan mín vorum ákveðin að yfirgefa borgina, höfðum rekið veitingastað í Reykjavík sem hét Bio Borgari og mamma og pabbi höfðu kennt við Waldorfskólann í einhver 30 ár. Við vorum sammála um að gaman væri að gera eitthvað svona og sjáum ekki eftir þeirri ákvörðun.” segir Vífill.

Fjölskyldan í Syðra-Holti ræktar grænmeti á lífrænan hátt og að sögn Vífils er tímabilið hér á Fróni ansi stutt. “Við erum sem er bara með útiræktun, ræktum einhverjar 25 tegundir af grænmeti yfir sumarið og erum að reyna að átta okkur á hvað við getum gert hérna og erum að læra inná þetta. Við erum að smíða okkar fyrsta alvöru gróðurhús núna, til að rækta meira og líka til að byrja ræktun fyrr á árinu og geta lengt tímabilið. Við seljum grænmetið fyrirfram á okkar kúnna sem fá grænmeti vikulega þessa þrjá mánuði yfir sumarið og vorum með síðasta sumar um 100 fjölskyldur sem höfðu skráð sig. Það er aðal söluleiðin sem við erum að fara, að selja þetta svona beint til kúnnans milliliðalaust.“ segir Vífill.

Vífill með uppskeru í Syðra Holti. Ljósmynd aðsend.
Vífill með uppskeru í Syðra Holti. Ljósmynd aðsend.

Vífill segir að ansi lítið fáist fyrir að selja grænmeti til stórverslanna, svo lítið að það liggi við að það sé ekki þess virði að gera það. Því hafa þau farið þessa leið að selja beint til viðskiptavina sinna og þá aðallega norðan heiða. Að sögn Vífils eru fyrir hendi grænmetisræktendur fyrir sunnan sem geti vel sinnt þörfinni þar og þau í Syðra Holti vilja sinna nærumhverfi sínu vel.

„Okkur langar að fara með einhverjar salatvörur í verslanir, en við höfum verið að vinna t.d. hvítkálið sem við ræktum á sumrin meira með því að gera súrkál. Það er þægilegra að selja það og maður er að gera grænmetið meira virði með þeirri aðferð. Svo erum við að þróa aðra hluti hérna, við erum hægt og rólega að byggja upp stofn af sauðfé og erum að fara að mjólka það. Við erum með í dag um 40 kindur og stefnum á að hafa um 80 talsins.

Við erum búin að koma okkur upp aðstöðu til að vinna úr mjólkinni og markmiðið er að búa til vöru, búa til osta á staðnum í hluta af fjárhúsinu hérna hjá okkur. Það eru mjög fáir að gera þetta,  þetta var algengt áður fyrr en eftir að kýrin kom þá gleymdist þetta svolítið. En það eru tveir aðrir aðilar sem við vitum um sem eru að gera þetta. Þau á Brúnastöðum í Skagafirði, þau eru með geitur og kindur líka. Og svo er þýsk kona sem kemur á bæ fyrir austan og er að mjólka og er með afurð í gegnum það, en hún býr reyndar ekki á þeim bæ.“ segir Vífill.


Samkvæmt Vífli er stefna þeirra á Syðra-Holti að koma með vöru tengt sauðfénu árið 2027 og er þetta því í hægri þróun að hans sögn. Þau hafa fengið styrki fyrir hvort tveggja, þ.e. lífrænu ræktunina og sauðfjáráformunum. En þar með er ekki öll sagan sögð því fjölskyldan er með meira í bígerð. „Okkur langar að vera með almennilegt eldhús hérna til að geta verið með kaffihús og taka á móti gestum hluta úr ári. Með því móti verður þetta opnara og fólk getur heimsótt okkur og séð hvað við erum að gera. Það væri gaman að geta haft þetta opinn bæ með miklu lífi, það er markmiðið. Við höfum áhuga á að vera með ýmsa viðburði, vorum með t.d. uppskeruhátíð hér í fyrra, fengum styrk fyrir því og það var frítt fyrir þá sem vildu koma. Við vorum með súpu og það voru tónleikar og húllum hæ í gangi hér. Þetta var svolítið mikið utanumhald, við leigðum útikamar og tjöld fyrir þetta, en við myndum vilja setja upp aðstöðu hér til að það sé hægt að hafa svona viðburði til að hitta fólk meira.“ segir Vífill að lokum.

 
 
 

Comments


bottom of page