top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

The Factory 2020

Updated: Jul 26, 2020


The Factory, Djúpavík, Vestfirðir, list, menning, listasýning, landsbyggðin, Patrik Ontkovic, úr vör, vefrit, Justin Levesque
Verkið „Ísfléttur“ eftir Justin Levesque. Ljósmynd Patrik Ontkovic.

Glæsileg listasýning er nú í gömlu síldarverksmiðjunni á Djúpavík, sem í dag ber nafnið The Factory. Þetta árið er um að ræða þverfagleg sýningu sem sameinar margbreytilega flóru sjónlistamanna. Þar með talið listamenn á sviði textíls, höggmynda, myndbandalistar, hljóðlistar, myndlistar, ljósmynda og innsetninga. Þessi nálgun skapar fjölbreytta og öfluga sýningu, sem um leið snertir breiðan hóp gesta.

Í fréttatilkynningu sem sýningarstjórinn Emilie Dalum sendi út er ætlunin með sýningunni að (endur)skapa, The Factory listasýningu, með því að sameina hrunin iðnað og nútímalist. Um leið er gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpuvík gefið nýtt líf í hinum afskekkta bæ.

„Innan veggja gömlu verksmiðjunnar verða til andstæður sem sameinast. Þannig bera listaverkin með sér rými og skynjun af umhverfi Djúpavíkur og alls Íslands. Markmiðið með sýningunni er að styðja við nærsamfélagið og listamennina og um leið reisa Ísland til virðingar og miðla hinum víðtæku áhrifum sem landið hefur á fólk í gegnum menningu og listir“

segir í tilkynningunni.


Á síðasta ári færði The Factory út kvíarnar og bættist við sýningarrými á Þingeyri í The Tub / Balinn Art Space, sem er gamalt hús þar í bæ. Þetta árið verður aftur boðið upp á sýningar í sumar. Það er margt sameiginlegt með verksmiðjunni í Djúpuvík og gamla húsinu á Þingeyri að sögn Emilie. Þau eru yfirgefin og í niðurníðslu en um leið hrá og raunveruleg. Hvort sem um ræðir síldarbrælu eða reykjarsvælu af ný steiktum kleinum þá má segja að hversdagslíf þeirra sem höfðust við í byggingunum sé umritað í veggi og gólf húsana segir í tilkynningunni.

The Factory, Djúpavík, Vestfirðir, list, menning, listasýning, landsbyggðin, Patrik Ontkovic, Úlfur Karlsson, úr vör, vefrit
Verkið „VIÐ GERUM ÞETTA SAMAN / WE ARE ALL IN THIS TOGETHER“ eftir Úlf Karlsson. Ljósmynd Patrik Ontkovic.

Hugmynd forsvarsmanna The Factory er að tengja þessa tvo Vestfirsku staði og gefa þeim ný hlutverk. Við hvetjum áhugasama um að kynna sér þessar áhugaverðu sýningar og bendum lesendum á að ÚR VÖR fjallaði einmitt um The Factory í mars mánuði á síðasta ári, hægt er að lesa um það hér: https://www.urvor.is/post/kannski-hafa-their-fengid-nog-af-natturunni

Opið er daglega á sýningunni frá klukkan 10:00 til 18:00 til 14. september næstkomandi og er aðgangur ókeypis. Hér að neðan má sjá nöfn listafólksins sem sýnir á báðum stöðunum þetta árið.


The Factory - Djúpavík:

Alfredo Esparza Cárdenas (MX)

Attilio Solzi (IT)

Emilie Dalum (DK / IS)

Guðrún Sigurðardóttir (IS)

Hertta Kiiski (FI)

- Lilja Birgisdóttir & Kjartan Holm (IS)

IYFAC - Inspirational Young Female Artist Club:

Halla Birgisdóttir (IS)

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir (IS)

Ragnheiður Maísól Sturludóttir (IS)

Sigrún Hlín Sigurðardóttir (IS)

- Daníel Helgasson, Una Sveinbjarnardóttir & Þórdís Gerður Jónsdóttir (IS) 

Jeff Mertz (US)

Justin Levesque (US)

Michael Richardt (DK)

Úlfur Karlsson (IS)

The Factory, Djúpavík, Vestfirðir, list, menning, listasýning, landsbyggðin, Patrik Ontkovic, úr vör, vefrit, Attilio Solzi, Emilie Dalum.
Verkin „MONOLITH“ (ljósmyndirnar) eftir Attilio Solzi og „I Am Calling For Colours“ (höggmynd) eftir Emilie Dalum. Ljósmynd Patrik Ontkovic.

Island Between Us - The Tub / Balinn Art Space:

Christiane Gerda Schmidt (DE)

Hrafnhildur Sigurðardóttir (IS)

Ines Meier (DE)

Mia Hochrein (DE)

Stephanie Krumbholz (DE)

Susanne Britz (DE)

Claudia Dunkelberg (DE)



bottom of page