top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Lofaði fólkinu sínu mörgum myndum


Gabríela Friðriksdóttir, Gallerí Úthverfa, listasýning, list, menning, Ísafjörður, Vestfirðir, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Verk eftir Gabríelu Friðriksdóttur sem sýnt er á sýningarröðinni Ferocius Glitter II í Gallerí Úthverfu þessa dagana.

Sýning Gabríelu Friðriksdóttir í sýningarröðinni Ferocious Glitter II opnaði þann 18. júlí síðastliðinn í Gallerí Úthverfu á Ísafirði og stendur yfir til 2. ágúst næstkomandi. Sýningin er seinni hlutinn í röð tíu tveggja vikna sýninga en fyrri hluti seríunnar fór fram í fyrrasumar og voru þá voru sýnd verk eftir Peter Schmidt, Svövu Skúladóttur, Ingólfs Arnarssonar, Karin Sander og Rögnu Róbertsdóttur. Sýningarnar tengjast allar Ísafirði og menningar- og listasögu bæjarins og er sýningarstjórinn Gavin Morrison.


Í fréttatilkyninningu frá Gallerí Úthverfu segir að hraðar skiptingar sýninganna séu að hluta til svar við árstíðabundnum sviftingum á norlægum slóðum þar sem sumarkoman með vaxandi dagsbirtu glæðir íbúana auknum krafti og sköpunargleði. Þessi orka er endurspegluð í örum skiptingum í bland við sterkan fókus sýningarrýmisins og miðar að því að skapa kraftmiklar aðstæður sem auðvelda skoðun sagna og samtímaverka í návígi en með víðtækari vitund um tengsl bæjarins við sköpunina sem hann hefur alið.

Fram kemur einnig í fréttatilkynningunni að þessi níunda sýning í Ferocious Glitter röðinni – og sú fjórða á þessu ári – sýni verk Gabríelu sem ættuð er frá Hnífsdal og dvaldi þar mörg sumur hjá afa sínum og ömmu. Hún hefur haldið tengslum við svæðið æ síðan og kemur reglulega til dvalar í Hnífsdal. Gabríela setti upp sýningu í sama rými um vetur fyrir rúmum tuttugu árum. Um tengslin milli þessara tveggja sýninga segir Gabríela eftirfarandi sögu:

,,Ég sýndi síðast í þessu rými, sem þá hét Slunkaríki, árið 1999. Systkini afa míns voru mörg á lífi á þeim tíma en þau voru frá Hnífsdal. Þetta frændfólk mitt var mjög vonsvikið yfir því hvað ég sýndi fáar myndir. Sýningin sem hét ,,Are You Ready to Rock’’ samanstóð af þremur verkum á vegg og einum skúlptúr á gólfi. Viðfangsefnið var snjór og ég var mjög ánægð með útkomuna sem var auk þess með hljóði sem barst upp um lúgu í gólfinu. Frændfólkið mitt í Hnífsdal tók til við að lauma peningaseðlum í vasa minn því þau töldu að þessi sýning hefði enga burði til að koma vel út fyrir mig fjárhagslega. Mér fannst þessi minning svo sæt og skemmtileg og gaf því fólkinu mínu, sem nú allt er horfið yfir móðuna miklu, loforð um að búa til sýningu með fullt af myndum.’’
Gabríela Friðriksdóttir, Gallerí Úthverfa, listasýning, list, menning, Ísafjörður, Vestfirðir, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Frá opnun sýningar Gabríelu Friðriksdóttir þann 18. júlí í Gallerí Úthverfu. Ljósmynd Gallerí Úthverfa

Að lokum eru upplýsingar í fréttatilkynningunni um listakonuna, sem má sjá hér að neðan. Þess má til gamans geta að ÚR VÖR fjallaði um Gallerí Úthverfu í apríl á síðasta ári, það má lesa þá umfjöllun hér: https://www.urvor.is/post/artsiceland-2019 Við hvetjum áhugasama um að skoða þessa skemmtilegu sýningu, sjón er sögu ríkari, en opið er í Gallerí Úthverfu fimmtudaga, föstudaga og laugardaga milli klukkan 16:00-18:00 og einnig eftir samkomulagi.

Um listakonuna

Gabríela Friðriksdóttir, fædd 1971, útskrifaðist frá Skúlptúrdeild Myndlista og Handíðaskóla Íslands vorið 1997 og var gestanemandi við AVU akademíuna í Prag veturinn 1998.  Hún vinnur jöfnum höndum með teikningar, málverk, skúlptúr, innsetningar og myndbandsverk.  Verk Gabríelu eru oft á mörkum dags og draums eða á mörkum hins óhlutbundna og hins hlutbundna og vinnur hún gjarnan útfrá ýmsum andlegum kerfum, fornum og nýjum.  Í verkum hennar er samstarf á milli hinna ýmsu listgreina  einkennandi og hún vinnur gjarnan stærri verk sín og innsetningar með tónlistarmönnum, dönsurum, kvikmyndagerðamönnum og arkítektum.  Gabríela hefur sýnt verk sín víða um heim og var verk hennar "Versations Tetralógía" framlag íslands til Feneyjatvíæringsins árið 2005.  Hún hefur m.a. sýnt verk sín í Centre Pompidou, Prospectif Cinema,París;  Migros Museum, Zurich; Museum of Contemporary Art, Tokyo; Kunsthaus Graz; La Biennale de Lyon;  Schirn Kunsthalle, Frankfurt; Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur.

Gabríela Friðriksdóttir, Gallerí Úthverfa, listasýning, list, menning, Ísafjörður, Vestfirðir, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Opnunin var vel sótt og voru gestir ánægðir með það sem fyrir augu bar. Ljósmynd Gallerí Úthverfa.


bottom of page