top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

HIP fest 2021


HIP fest, Hvammstangi, brúðuleikhús, leikhús, list, menning, norðurland, landsbyggðin, úr vör, vefrit, Handbendi brúðuleikhús
Úr verkinu „Hopeful monsters“ Ljósmynd HIP fest

Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival – HIP Fest – fór fram í annað sinn í byrjun þessa mánaðar, nánar tiltekið dagana 8. til 10. október. Í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar komu á hátíðina á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem buðu upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir.


HIP Fest sé einstök viðbót í menningarlíf landsmanna, enda eina brúðulistahátíð landsins. HIP Fest var valinn menningarviðburður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020 og skipuleggjandi hátíðarinnar, Handbendi – Brúðuleikhús, er núverandi Eyrarrósarhafi, en Eyrarrósin eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.


Í fyrrnefndri fréttatilkynningu kemur fram að þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir á hátíðinni í fyrra þá tókst hún einstaklega vel við mikla ánægju þátttakenda og áhorfenda. Brúðulistin er fjölbreytt og fornt listform sem stöðugt haslar sér meiri völl í menningarlífi landsins. Á hátíðinni mátti líta fjölbreyttar sýningar fyrir alla aldurshópa, sem nýta sér öll blæbrigði listformsins.


Til gamans má geta að vefritið ÚR VÖR fjallaði um HIP fest í október á síðasta ári og má lesa allt um það hér: https://www.urvor.is/post/brudulistahatid-a-hvammstanga


bottom of page