top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

A! Gjörningahátíð 2021


A! Gjörningahátíð, gjörningur, performance art, list, menning, Akureyri, norðurland, úr vör, vefrit
Gjörningur Elisabet Raymond, AmberSmits og Niklas NikiBlomberg. Ljósmynd A! Gjörningahátíð

A! Gjörningahátíð fór fram dagana 7. október til 10. október og var haldin í Listasafninu á Akureyri. A! Gjörningahátíð er fjögurra daga alþjóðleg hátíð sem haldin er árlega og var nú haldin í sjöunda sinn og var ókeypis inn á alla viðburði. Samkvæmt fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar þá valdi sérstök dómnefnd úr innsendum umsóknum listamanna og voru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur voru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Að þessu sinni fóru gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.

Listamennirnir sem komu fram í ár voru: Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome, Anna Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson, Sigtryggur Berg Sigmundsson, Snorri Ásmundsson, Brák Jónsdóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Hymnodia, Elisabeth Raymond, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg, Hombre Rural og Libia Castro, Ólafur Ólafsson og Töfrateymið.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.


Þess ber að geta að vefritið ÚR VÖR fjallaði um A! Gjörningahátíð í júní mánuði árið 2019 og hægt er að lesa allt um það hér: https://www.urvor.is/post/a-gjorningahatidin-2019


bottom of page