top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Vofandi...Drjúpandi...


Gallerí Úthverfa, Ísafjörður, list, menning, Diana Chester, Gary Markle, Outvert Art Space, landsbyggðin, úr vör, vefrit
„Þetta framkallar e.k. neðanjarðar-fjöruborð sem blandast saman við frumstætt gufubaðslegt umhverfi sem býður gesti velkomna til að taka þátt, hlusta, finna og dvelja innan þess.“ Ljósmynd aðsend frá Gallerí Úthverfu.

Laugardaginn 2. desember síðastliðinn opnaði sýning á verkum Diana Chester og Gary Markle í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið Vofandi...Drjúpandi...Hlustandi... og stendur til sunnudagsins 24. desember næstkomandi. Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Gallerí Úthverfu segir að listamennirnir Diana Chester og Gary Markle snéru aftur til Íslands til að vinna saman að innsetningu sem byggir á og útvíkkar listrannsóknir þeirra sem hófust á mánaðarlangri listamannadvöl hjá ArtsIceland á Ísafirði sumarið 2022.


Í fyrrnefndri fréttatilkynningu segir að Diana Chester sé bandarískur hljóðlistamaður og kennari með aðsetur í Ástralíu; Gary Markle er kanadískur listamaður og kennari sem býr í Eistlandi og vinnur á sviði ,,þróaðrar“ tísku (expanded fashion). Sameiginlegir snertifletir vinnu þeirra hafa þróast í framhaldi af því að þau dvöldu samtímis við rannsóknir á Vestfjörðum sumarið 2022. Sérstaklega reyndist strandsvæðið, þar sem land og sjór mætast, vera frjósamt rými ímyndunarafls sem snerti þau bæði djúpt. Upphaflegar rannsóknir frá veru þeirra á Íslandi og frekari hugleiðingar sem byggja á reynslunni sem þau urðu fyrir, hafa nú skilað þessu samstarfsverkefni í Gallerí Úthverfu.


Jafnframt segir í fréttatilkynningu frá Gallerí Úthverfu að í innsetningunni eru flóknar landslagsupptökur geymdar í grófum handprjónuðum strúktúr sem búinn er til úr garni úr iðnaðarplasti.

Þetta framkallar e.k. neðanjarðar-fjöruborð sem blandast saman við frumstætt gufubaðslegt umhverfi sem býður gesti velkomna til að taka þátt, hlusta, finna og dvelja innan þess. Rýmið er til að ígrunda tengsl milli landamæra, takmarkana, heima sem bæði er hægt og ekki hægt að sjá og heyra.

Við hvetjum áhugasama um að kynna sér endilega þessa sýningu.+


bottom of page