top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Undir húðinni


Päivi Vaarula, Deiglan, Akureyri, list, menning, listasýning, Gilfélagið, norðurland, landsbyggðin, roð, textíl, úr vör, vefrit
„Ég var að móta fiskileður (roð) og lét efnið tala til mín. Þá þróuðust formin í höndum mínum út frá þeim hugsunum og hugmyndum sem ég hafði.“ Verk eftir Päivi Vaarula

Dagana 22. - 23. apríl næstkomandi mun Päivi Vaarula, sýna verk sín í Deiglunni á Akureyri. Päivi er finnskur textíllistamaður sem hefur lagt stund á textíllist í 40 ár og er með meistaragráðu í henni, en hún hefur verið í vinnustofudvöl í gestavinnustofu Gilfélagsins í apríl mánuði og sýnir nú afrakstur vinnu sinnar. Sýningin verður opin frá 14:00 -17:00 báða dagana.


Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Deiglunnar munu verkin á sýningunni samanstanda af roði sem hún hefur mótað.

„Ég kanna atburði og tilfinningar úr lífi mínu sem hafa haldist undir húðinni. Ég þýði lífið á tungumál textílsins. Markmið mitt sem listamanns er að segja sögur og kanna líf konu. Ég endurspegla tilfinningar, næmi, hugmyndir og viðhorf inn í list mína. Hughrif mín geta breytist hratt og þá fylgi ég eðlishvötinni minni og nýtt inntak skapar nýtt verk.“ er haft eftir Päivi í fréttatilkynningunni.

Í fyrrnefndri fréttatilkynningu kemur fram að þetta sé fimmta listamannadvöl Päivi á Íslandi. Auk þess bjó hún og kenndi verkgreinar og textíl í Hallormsstaðaskóla á árunum 2017-2019. „Þann tíma sem ég hef starfað sem listamaður hef ég verið að rannsaka þær tilfinningarnar sem bærast undir húðinni. Fyrsta viðbragð var að ýta óþægilegum tilfinningum upp á yfirborðið og þá urðu þær ein af annarri jákvæðari og jákvæðari. Ég var að móta fiskileður (roð) og lét efnið tala til mín. Þá þróuðust formin í höndum mínum út frá þeim hugsunum og hugmyndum sem ég hafði.“ segir Päivi.

Þess ber að geta að Päivi sýnir einnig í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri, með Ragnheiði Björk Þórsdóttur dagana 14. til 23. apríl og sýninguna nefna þær Teksti- Texti.






bottom of page