top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

The Factory 2022


Iða Brá Ingadóttir, The Factory, Djúpavík, Vestfirðir, list, menning, listasýning, landsbyggin, úr vör, vefrit
„Ímyndaðu þér núna, sama vatnið undir hvaða yfirborði sem er, sama vatnið og er inní líkama þínum. Á ferðalagi sínu tekur vatnið stöðugum breytingum, það myndar nýjar samsetningar með aðra þýðingu.“ Verk eftir Iðu Brá Ingudóttir, ljósmynd aðsend.

Listasýningin „Undirheimar vatnsins“ er sýnd þessa dagana í The Factory, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík. Sýningin opnaði þann 11. júní síðastliðinn og er opin daglega frá 10:00 -18:00 til 11. september næstkomandi. Aðgangur er ókeypis og er sýningarstjórinn líkt og síðustu ár hún Emilie Dalum.

Í þessari þverfaglegu sýningu sameinar The Factory fjölbreyttan hóp sjónlistamanna meðal annars á sviði textíls, höggmynda, myndbandslistar, hljóðlistar, myndlistar, ljósmynda, innsetninga ofl. Þessi nálgun skapar fjölbreytta og öfluga sýningu, sem nær til breiðs hóps gesta.

Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki The Factory segir orðrétt:

„Undirheimar vatnsins, vatnið í okkar skilningi: Hafið, fossinn, regndroparnir, vatnaniðurinn, rakinn, snjórinn. Það má finna allar þessar birtingamyndir vatns inní og í kringum gömlu síldarverskmiðjuna í Djúpavík. Það safnast fyrir í jarðveginum undir okkur, seytlar niður veggi og liggur ofan á þakinu. Ímyndaðu þér núna, sama vatnið undir hvaða yfirborði sem er, sama vatnið og er inní líkama þínum. Á ferðalagi sínu tekur vatnið stöðugum breytingum, það myndar nýjar samsetningar með aðra þýðingu. Efnisþættir vatns. Hvað hafa þeir að geyma? Hvert fara þeir í raun og veru?“


Í fyrrnefndri fréttatilkynningu segir jafnframt að með þemanu vatn og haf, dragi sjöunda sýning The Factory að sér mennskar og ómennskar verur sem lifa bæði ofan og neðan sjávar. Listaverkin eru túlkuð á vatnskenndan og glitrandi hátt - umvafin þunglamalegri og myrkri steypu verksmiðjunarinnar.


Listamenn sýningarinnar í ár eru hér að neðan:

Aniara Omann (DK) Alexis Brancaz (FR) Björn Jónsson (IS) Christalena Hughmanick (US) Christine Nguyen (US) Halla Birgisdóttir (IS) Heidi Zenisek (US) Heinz Kasper (AT) Iða Brá Ingadóttir (IS) Kate Robinson (US) Melkorka Þorkelsdóttir (IS) Sarah Finkle (US) Simon Lambrey (FR)


Við hvetjum áhugasama endilega til þess að kynna sér þessa áhugaverðu sýningu og þess ber að geta að vefritið ÚR VÖR hefur fjallað áður um sýningu The Factory, það má lesa allt um það hér: https://www.urvor.is/post/kannski-hafa-their-fengid-nog-af-natturunni


bottom of page