Sýningin A.object í Úthverfu
- ÚR VÖR
- Apr 30
- 2 min read

Laugardaginn 19. apríl síðastliðinn opnaði sýningin A. Object í Gallerí Úthverfu að viðstöddum sýningarstjóra og nokkrum af listafólkinu sem eiga verk á sýningunni. Í ár eru 40 ár liðin frá því fyrst var opnuð sýning á samtímalist í rýminu við Aðalstræti 22 á Ísafirði.
Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Gallerí Úthverfu er haft eftir sýningarstjóranum Joe Keys:
„Þessi sýning snýst um skáldlega hlutinn og áþreifanlega ljóðið og ferðalagið þar á milli. Pappír kemur mikið við sögu á þessari sýningu, þar sem hann er sérlega hentugt miðlunartæki fyrir ljóðræna framsetningu. Upphafsneistinn að gerð sýningarinnar fólst í að kynna bækur og margfeldi, og það hefur ekki breyst, þó að lúmsk rannsókn á hlutkennd og ljóðrænu hafi síðar tekið yfir þennan upphaflega neista."
Í fyrrnefndri fréttatilkynningu segir jafnframt að sýningin sé hluti af dagskrá þar sem haldið er uppá 40 ár af samtímalist í Gallerí Úthverfu sem áður hýsti Slunkaríki. Aðrar sýningar á árinu eru m.a. sýning finnsku listamannanna Karoliina Hellberg og Josefina Nelimarkka sem opnar 17. júní í tengslum við tónlistarhátíðina ,,Við Djúpið“ og sumarsýning Roni Horn sem opnar 18. júlí. Á sama tíma verður einnig skipulögð sýning Unu B Magnúsdóttur og Loga Gunnarssonar í sal Myndlistarfélagsins á Ísafirði, Slunkaríki, sem nú er hluti af Edinborg menningarmiðstöð.
Afmælisdagskrá ársins lýkur með útgáfu bókar/bæklings þar sem starfsemi Úthverfu og Slunkaríkis undanfarna áratugi verður gerð skil í máli og myndum.
Eftirfarandi listamenn eiga verk á sýningunni:
Linus Lohmann
Hekla Guðrúnardóttir Kollmar
Sigurður Atli Sigurðsson
Ásta Fanney Sigurðardóttir
Hildigunnur Birgisdóttir
Emmet Williams
Ian Hamilton Finlay
Jonathan Monk
Magnús Pálsson
Una Björg Magnúsdóttir
Við hvetjum áhugasama um að kynna sér endilega þessa áhugaverðu sýningu, en hún verður opin til 8. júní næstkomandi.
コメント