top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Ísleifur á heimaslóðum


Ísleifur Konráðsson, Grímsey, list, listasýning, menning, myndlist, Drangsnes, listfélagið Steingrímur, Vestfirðir, landsbyggðin, Vigfús Birgisson, vefrit, Úr Vör
Verkið Grímsey eftir Ísleif Konráðsson. Ljósmynd Vigfús Birgisson.

Laugardaginn 26. ágúst síðastliðinn opnaði sýning á málverkum Ísleifs Konráðssonar (1889 - 1972) í gamla bókasafninu á Drangsnesi. Í fréttatilkynningu frá listfélaginu Steingrími segir að til sýnis séu nokkur málverk sem fengin eru að láni úr ýmsum áttum eftir þennan merka alþýðulistamann.


Þar segir jafnframt að í rauninni séu flest verkin máluð eftir minni eða póstkortum af þeim stöðum sem þau túlka, þar sem málarinn var að mestu hættur að geta ferðast þegar hann tók til við að mála, eins og fram kemur í texta Aðalsteins Ingólfssonar sem birtist í sýningarskrá.

Ísleifur fæddist og ólst upp í Steingrímsfirði og segir í fréttatilkynningunni að myndir hans sýni ekki eingöngu landslag, heldur séu þær skrásetning á gróðri, fuglalífi og kennileitum og í augum Ísleifs er náttúran full af duldum vættum, eins og Ólafur Engilbertsson kemur inn á í umfjöllun sinni í sýningarskrá.

Listfélagið Steingrímur stendur fyrir sýningunni í því umhverfi sem varð Ísleifi svo dýrmæt uppspretta í myndlistinni. Í tengslum við sýninguna heldur listfélagið verkstæði sem er opið öllum grunnskólabörnum á Drangsnesi og Hólmavík. Sýningin stendur yfir til 17. september og er opin miðvikudaga til sunnudaga frá 13.00-17.00 og hvetjum við áhugasama um að kynna sér hana endilega.


Þess ber að geta að verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Íslands, Sóknaráætlun Vestfjarða og Listasafni ASÍ.

Comments


bottom of page