top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Boðflenna


Snorri Ásmundsson, Boðflenna, Listasafn Reykjanessbæ, Reykjanes, list, menning, listasýning, yfirlitssýning, landsbyggðin, úr vör, vefrit
Listasafn Reykjanesbæjar rammar inn og færir persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem eykur skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi. Ljósmynd aðsend.

Yfirlitssýning Snorra Ásmundssonar, Boðflenna, opnaði um miðjan maí mánuð síðastliðinn í Listasafni Reykjanesbæjar og mun standa yfir til 20. ágúst næstkomandi.


Í sýningarskránni segir að sköpun og gjörðir Snorra verði til þar sem hann stendur og hvíla í honum sjálfum. Þannig er myndsköpun hans ekki skáldskapur eða vel nært „alter egó“.

Listamaðurinn er gjörsneiddur leiklistarhæfileikum. Að þessari ástæðu má mögulega halda því fram að Snorri sé stórtækasta lifandi listaverk Íslenskrar listasögu. Í raun er aðeins hægt að bera Snorra saman við bresku listamennina Gilbert og George, sem framkvæma eigið líf sem lifandi skúlptúr þar sem efniviðurinn er breskur persónuleiki og sú táknfræði sem umlykja það auðkenni.

Í fyrrnefndri sýningarskrá segir jafnramt að það sem þú sérð er framlag Snorra Ásmundssonar til listarinnar, til íslensku þjóðarinnar og heimsins líka. Æsa Sigurjónsdóttir, segir að listamenn hafi gert til sín miklar kröfur um að vísa þjóðinni leiðina til framtíðar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Listamaðurinn átti að vera brautryðjandi, landnámsmaður og sjáandi, andlegur viti sem bryti niður hið gamla og úrelta og benti á hið nýja sem koma skildi. (Sigurjónsdóttir. 2011) Segja má að þau gildi sem Æsa, telur upp séu leiðarljós Snorra í lífinu og listinni. Hann hefur unnið sem andlegur leiðbeinandi, sjáandi yogi, brautryðjandi tímatengdrar listar, jafnvígur í söng og píanóleik, listamaður sem leggur sig sannarlega fram við að brjóta niður það gamla og úrelta, á sama tíma og hann er óþreytandi að benda á nýjar leiðir og það sem koma skal.

Hver man eftir forsetaframboðinu 2004? Vinstri Hægri Snú framboðinu? Kattaframboðinu? Besta píanóleikara Evrópu? Fjallkonunni? Listasafn Reykjanesbæjar rammar inn og færir persónu- og myndsköpun Snorra í ákveðinn farveg sem eykur skilning almennings á gagnrýninni samfélagslegri gjörningalist á Íslandi.

Sýningarstjóri Helga Þórsdóttir og aðstoðarsýningarstjórar eru þær Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir. Við hvetjum áhugasama um að kynna sér þessa sýningu við fyrsta tækifæri.


Comentários


bottom of page