Föstudaginn 25. október næstkomandi opnar sýning Sigurðar Atla Sigurðssonar sem nefnist „Allt mögulegt“ í sýningarsal Listasafni Ísafjarðar á 2. Hæð t.v. í Safnahúsinu við Eyrartún. Sýningin er hluti af menningar- og listahátíðinni Veturnóttum á Ísafirði sem fer fram dagana 24. - 27. október næstkomandi. Sýningin opnar klukkan 17:00 og verður boðið upp á léttar veitingar og verður listamaðurinn viðstaddur opnunina.
Í fréttatilkynningu frá forsvarsfólki Listasafns Ísafjarðar er haft eftir Sigurði Atla.
„Ég er mjög upptekinn af því hvernig litir og form birtast okkur í öllu sem við sjáum. Ég get ímyndað mér að ungabörn sjái heiminn á áhugaverðan hátt sem flæði af litum, formum og áferðum. Þegar við eldumst mótum við okkur hugmyndir um hvernig hlutir eigi að líta út. Fyrir þessa sýningu langaði mig að gera verk sem byggja á raunverulegum hlutum eins og þeir birtast okkur. Þetta eru þannig séð frekar ómerkilegir hlutir; byggingavörur, aukahlutir í raftæki, eldhúsáhöld o.s.frv. sem mynda símynstur. Frá vissum sjónarhornum geta þessir hversdagslegu aukahlutir leitt hugann í óravíddir.“
Í fyrrnefndri fréttatilkynningu segir jafnframt að verk Sigurðar Atla (f.1988) svo sem „Frelsi“ og „Sætaskipan“ setji fram kunnugleg myndræn kerfi og bjóða áhorfendum að gera upp við sjálf sig hvað þau standi fyrir. Verkum Sigurðar hefur verið líkt við konkret ljóð. Joe Keys sagði m.a. í Senu sýningarskrá sem kom út árið 2024: „Í þessum skilningi líkjast verk hans konkret ljóðum, í samtalinu milli stærða, hvernig svo litlar upplýsingar á blaði geti staðið fyrir rými, líkama eða hlut.“ Verkin eiga það sameiginlegt að vera formhrein og einföld og vinna með það sem mætti kalla grunneiginleika grafíkur; lagskiptingu og endurtekningu, þó að þau séu unnin í aðra miðla. Verkin á sýningunni eru unnin með UV-bleksprautuprenti og silkiþrykki í bland við olíumálningu og olíupastel. Þau standa á mörkum prentverks og málverks, raunveruleikans og hins ímyndaða.
Áfram er vitnað í fréttatilkynninguna og þar er að auki sagt að Sigurður sé þekktur fyrir formhrein verk sem skoði þau mynstur sem móta mannleg samskipti. Þar segir að verk hans taki á sig form stórra myndaraða og innsetninga sem taka yfir sýningarrýmið. Á ferli sínum hefur Sigurður Atli unnið með ýmsar grafískar prentaðferðir og fengist við útgáfu bókverka. Árið 2015 stofnaði hann Prent & vini ásamt Leifi Ými, saman hafa þeir unnið með fjölda listamanna að prent- og bókverkum. Um svipað leyti hóf Sigurður Atli að kenna við Listaháskóla Íslands og sá um grafíkverkstæði skólans um nokkurra ára skeið. Sérþekking hans á þessu sviði hefur leitt hann til að halda sýningar og stýra sýningum víða um heim, nýlega á Museum of Contemporary Art Tokyo, Listasafninu á Akureyri og Listasafni Íslands.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði og við hvetjum alla áhugasama um að kynna sér hana endilega, en aðgangur er ókeypis.
Comments