top of page

Vefrit fjármagnað af lesendum

Ef þér líkar við skrif okkar og efnistök og vilt sjá vefritið lifa og dafna þá er um að gera að gerast áskrifandi. Þinn stuðningur skiptir máli!

Á víð og dreif


Listasafn Ísafjarðar, Á víð og dreif, Ísafjörður, list, menning, listasýning, landsbyggðin,  Vestfirðir, Kristján Davíðsson, úr vör, vefrit
Plakat um sýninguna með verkinu „Morgunstund“ eftir Kristján Davíðsson í bakgrunni

Listasafn Ísafjarðar bauð gesti velkomna á opnun sýningarinnar „Á víð og dreif“ föstudaginn 20. janúar síðastliðinn í sal Listasafns Ísafjarðar í Safnahúsinu Eyrartúni. Í fréttatilkynningu frá sýningarstjóra safnsins segir að Listasafn Ísafjarðar búi yfir ágætri safneign sem telji um 180 verk. Hluti af verkunum má víða sjá prýða veggi í opinberum byggingum Ísafjarðarbæjar. Verkin hafa hangið á sínum stöðum í tugi ára og mörg hver lent í gini hversdagsins og horfið inn í undirmeðvitund almennings. Á þessari fyrstu sýningu ársins 2023 eru nokkur af verkunum færð í sviðsljósið á sýningu í sal Listasafnsins og segir jafnframt í tilkynningunni að sýningin sé áminning um að líta upp úr amstri hversdagsins og njóta þess sem við eigum.

Valin voru sex málverk eftir fjóra þjóðþekkta listamenn síðustu aldar; Jóhannes S. Kjarval, Karl Kvaran, Kristján Davíðsson og Nínu Tryggvadóttur ásamt einum skúlptúr eftir hugmyndalistamanninn Kristján Guðmundsson. Innbyrðis eru listamennirnir ólíkir en samtenging verkanna er óhlutbundin myndbygging þar sem skúlptúr Kristjáns Guðmundssonar myndar brú frá liðnum tíma inn í samtímann.

Sýningin mun standa yfir til 25. mars næstkomandi og hvetjum við áhugasama um að láta hana ekki framhjá sér fara. Aðgangur er ókeypis og þess ber að geta að Listasafn Ísafjarðar hlýtur stuðning Ísafjarðarbæjar.


Comments


bottom of page